Happdrættismiðar

ÞÚ ÞARFT MIÐA TIL AÐ VERA MEÐ

Happdrættið er einfaldur leikur með mikla vinningsmöguleika. Til þess að vera með færðu þér einfaldlega miða með númeri á bilinu 1 til 60.000.

EINN MIÐI - TVEIR LEIKIR

Aðalútdráttur er í kringum 10. dag hvers mánaðar. Um það bil 3.000 miðaeigendur fá vinninga frá kr. 5.000 upp í kr. 45.000.000. Að meðaltali eru greiddar út um 60 milljónir á mánuði til vinningshafa eftir Aðalútdrátt.

Milljónaveltan er nýr leikur sem fer fram í seinni útdrætti hvers mánaðar, um tveimur vikum eftir Aðalútdrátt. Í Milljónaveltunni er dregið úr öllum miðum um einn stakan 10 milljóna króna vinning. Ef vinningurinn gengur ekki út veltur hann áfram og bætist við seinni útdrátt næsta mánaðar. Vinningurinn getur því stækkað um 10 milljónir á mánuði en gengur að fullu út í árslok. Að auki eru í Milljónaveltunni dregnir út 5 vinningar að upphæð 1 milljón króna, aðeins úr seldum miðum.

STYRKTU HÁSKÓLA ÍSLANDS

Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ) er alfarið í eigu Háskóla Íslands og rekið með það að markmiði að afla fjár til byggingaframkvæmda og tækjakaupa fyrir Háskólann.

Til baka, Prenta greinina

 

Næstu útdrættir

10. feb. 2012

24. feb. 2012

13. mar. 2012

Milljónamælirinn

Útgreiddir vinningar á árinu eru...

57.185.000 kr.


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd