Ófjárráða vinningshafar
Lengi hefur tíðkast að foreldrar eða aðrir ættingjar skrái börn sem eigendur miða. HHÍ hefur ekki bannað þetta en hvetur ekki til þess því óvænt vandamál getur komið upp ef vinningur kemur á miðann.
Þegar einstaklingur undir 18 ára aldri hlýtur vinning sem er hærri en kr. 500.000 getur happdrættið ekki gengið frá útborgun vinnings á sama hátt og venjulega. Lög mæla svo fyrir að þá skuli happdrættið tilkynna sýslumanni þar sem viðkomandi á lögheimili um vinninginn og fjárhaldsmaður viðkomandi (foreldrar) geyma peningana á viðurkenndum reikningi með öruggri ávöxtun.
Fjárhaldsmaður þarf síðan einu sinni á ári að gefa sýslumanni skýrslu um stöðu sjóðsins. Fjárhaldsmanni er óheimilt að ráðstafa peningunum á neinn hátt nema með samþykki viðkomandi sýslumanns.
Þetta þýðir í raun og veru að happdrættisvinningurinn er nánast ósnertanlegur þangað til barnið er orðið 18 ára. Sömu reglur gilda hvort sem um venjulega happdrættismiða er að ræða, skafmiða eða hvern annan vinning eða gjöf fyrir kr. 500.000 eða meira.
Vert er að ítreka að þetta eru landslög, ekki reglur sem happdrættið hefur sett sér.
Til baka,
Prenta greinina