Leikurinn

Flokkahappdrætti HHÍ

Viðskiptavinur byrjar á því að velja sér lausa happdrættismiða, einn eða fleiri, með númeri á bilinu 1 – 60.000.

Miðinn er skráður á kennitölu kaupandans (miðaeiganda).

Þegar búið er að ganga frá greiðslu miðans verður hann gildur strax í næsta útdrætti og öllum útdráttum þaðan í frá svo lengi sem greiðsla berst fyrir endurnýjun miðans.

Eftir útdrætti eru vinningaskrár birtar á vef HHÍ og í Morgunblaðinu daginn eftir útdrátt. Einnig er hringt í alla vinningshafa sem fengu vinning að fjárhæð 1 milljón eða meira.

Útborgun vinninga hefst síðan 6 dögum eftir að útdráttur fór fram.

Allir vinningar í Happdrætti Háskóla Íslands eru skattfrjálsir.



Til baka, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd