Nokkrar algengar spurningar sem okkur hafa borist:
Hvernig eignast ég miða?
-
Fljótlegast er að nota kaupkerfi HHÍ efst til hægri hér á síðunni. Einnig er hægt að hringja í síma 800-6611 eða 563-8300 á skrifstofutíma. Svo er líka hægt að heimsækja einn fjölmargra
umboðsmanna okkar um allt land og kaupa miða hjá þeim.
Hvernig vel ég númer?
-
Einfaldast er að láta leitarvélina í kaupferlinu efst til hægri hér á síðunni aðstoða sig við leit að númeri eða hafa samband við
umboðsmann okkar og fá aðstoð.
-
Auk þess að vera númeraður, er hver miði auðkenndur með bókstaf; B, E, F, G og H. Hvert númer hefur einn trompmiða sem auðkenndur er með bókstafnum B. Trompmiðar hafa fimmfalt gildi. Hinir bókstafirnir eru einfaldir miðar. Ekki skiptir máli hver þessara bókstafa er valinn, þar sem allir miðar með sama númeri fá vinning ef númerið er dregið út í Aðalútdrætti. Þegar dregið er í Milljónaveltu er bæði dregið út númer og bókstafur. Þar er dregið um einn 10.000.000 króna vinning þar sem dregið er bæði úr seldum og óseldum miðum. Í „Milljón á mann“ er einnig dregið úr númerum ásamt bókstaf, en aðeins úr seldum miðum.
Hvað kostar miði?
Hvað er Trompmiði?
-
Trompmiðar eru auðkenndir með bókstafnum B, t.d. 32695-B.
-
Í Aðalútdráttum hefur trompmiði fimmfalt gildi á móti einföldum. Vinningur sem dreginn er út á trompmiða fimmfaldar vinningsupphæðina. Útdreginn vinningur sem er kr. 5.000 verður kr. 25.000 á trompmiða og 5.000.000 verða 25.000.000!
-
Í Milljónaveltunni er dregið um einn 10.000.000 króna vinning þar sem dregið er bæði úr seldum og óseldum miðum. Í Milljón á mann er dregið um fimm vinninga að fjárhæð 1.000.000 kr., aðeins úr seldum miðum. Í Milljónaveltu og Milljón á mann hækkar vinningsupphæðin ekki, heldur aukast möguleikar eiganda trompmiðans til vinnings með því að hver seldur trompmiði er fimmfaldur í pottinum sem dregið er úr.
-
Endurnýjun trompmiðans er fimmföld á mánuði eða kr. 6.500
Hvað er Aðalútdráttur?
Hvað er Milljónaveltan?
Hvað er „Milljón á mann“?
Hvenær er dregið?
-
Dregið er einu sinni í mánuði, um 10. dag hvers mánaðar. Ekki er þó dregið um helgi eða mánudegi, flyst þá útdráttur til þriðjudags. Dregið er í öllum leikjum eða útdráttum á sama tíma; Aðalútdrætti, Milljónaveltu og Milljón á mann.
Eru margir miðar með sama númeri?
-
Fimm miðar eru gefnir út með sama númeri. Miðarnir hafa þó ekki alveg sama númerið þar sem þeir eru aðgreindir með bókstöfunum B, E, F, G og H.
-
Númer með bókstafnum B er svokallaður trompmiði. Trompmiðar hafa fimmfalt gildi á við hina miðana, sem eru einfaldir miðar (E, F, G og H). Ekki skiptir máli hver þessara bókstafa er við miðanúmerið sem dregið er út þar sem hver og einn þessara miða fær vinning ef númerið er dregið út í Aðalútdrætti. Í Milljónaveltunni og Milljón á mann er dregið út bæði númer og bókstafur, en Trompmiði margfaldar ekki vinning heldur eykur hann líkur á vinningi fimmfalt.
-
Það er sem sagt hægt að eiga einn miða með tilteknu númeri, tvo, þrjá og allt upp í fimm miða sem gefa nífaldan vinning í Aðalútdrætti!
Hverjar eru vinningslíkurnar?
-
Í reglugerð um HHÍ er sagt til um að vinningshlutfallið skuli vera 70%. Það þýðir að af 1.300 krónu endurnýjun hvers miða fara 910 aftur út til miðaeigenda sem vinningar.
-
Heildarfjöldi númera er 60.000. Vinningslíkur hvers númers í sérhverjum Aðalútdrætti er sem hér segir:
- 5.000.000 kr. : 1/60.000 = 0,002%
- 500.000 kr. : 3/60.000 = 0,005%
- 200.000 kr. : 9/60.000 = 0,015%
- 100.000 kr. : 40/60.000 = 0,067%
- 15.000 kr. : 1225/60.000 = 2,042%
- 5.000 kr. : 1200 /60.000 = 2,0%
- 50.000 kr. : 2/60.000 = 0,003%
-
Vinningslíkur hvers númers í Milljónaveltu og Milljón á mann eru sem hér segir:
- 1.000.000 kr. : 1/(0,2 x 300.000) = 0,002% (Dregið er úr seldum miðum, en um 20% upplagsins er selt hverju sinni. Heildarfjöldi miða (númer+bókstafur) er 300.000 (5 x 60.000)).
- 10.000.000 kr. (getur hækkað milli mánaða) = 1/300.000 =0,00033%
- Líkur margfaldast í Milljónaveltu og Milljón á mann með fjölda miða í hverju númeri (t.d. fimmfaldar Trompmiði vinningslíkurnar)
-
Að jafnaði kemur vinningur á annað hvort númer yfir heilt ár. Það eru því um 50% líkur á að fá einhvern vinning, stóran eða smáan, að meðaltali á ári. Sum númer eru vissulega „heppnari“ en önnur; þannig geta liðið nokkur ár á milli vinninga í sumum númerum, en aðeins nokkrir mánuðir í öðrum númerum.
Hvað með skattinn?
-
Vinningar HHÍ eru skattfrjálsir.
-
Þetta þýðir að ef þú færð 5.000.000 í vinning – þá færðu 5.000.000 í vinning! Happdrætti Háskólans sendir hvorki skattyfirvöldum né öðrum aðilum upplýsingar um vinninga.
Hver fær að vita af vinningum?
-
Vinningshafinn fær að vita um vinninginn – enginn annar.
-
HHÍ leggur mikið upp úr trúnaði við viðskiptavini sína. Það er vinningshöfum því í sjálfsvald sett hvort þeir segja einhverjum af heppni sinni eða ekki.
Hvernig veit ég hvort ég vann?
Ýmsar leiðir eru til þess að sjá hvaða númer fengu vinning. Þær eru helst þessar:
-
Vinningaskráin birtist fljótlega eftir útdrátt á vefnum okkar.
-
Vinningaskráin er birt í Morgunblaðinu daginn eftir útdrátt.
-
Fjótlega eftir útdrátt er hægt að slá inn miðanúmerið og láta vefinn leita í vinningaskránni.
-
Með skráningu á ”Mínar síður” er hægt að fá sent sms og/eða tölvupóst þegar vinningaskráin er komin á netið, þegar vinningur kemur á miðann þinn eða með númerinu sem fékk hæsta vinning mánaðarins.
-
Þeim sem ekki hafa sótt vinninga tveimur vikum eftir útdrátt er send tilkynning í pósti.
-
Síðast en ekki síst er hægt að hringja í HHÍ og umboðsmenn þess um allt land og leita upplýsinga.
Hvernig fæ ég vinning greiddan?
Til baka,
Prenta greinina