Vinningar sem dregið er um árið 2012
Vinningaskrá ársins
Vinningar í Happdrætti Háskóla Íslands eru glæsilegir á árinu 2012.
Árið 2011 voru um 840 milljónir greiddar út til vinningshafa.
Hæsti vinningur á einfaldan miða er kr. 5.000.000. Hæsti vinningur á trompmiða er kr. 25.000.000.
Ef sami aðili á alla miðana með sama númeri (miða merkta B, E, F, G og H) fær hann í sinn hlut kr. 45.000.000 ef hæsti vinningur kemur á hans númer. Þar sem vinningar eru skattfrjálsir rennur öll upphæðin í vasa vinningshafa.
Í Milljónaveltunni er dregið úr öllum miðum um einn stakan 10 milljóna króna vinning. Ef vinningurinn gengur ekki út veltur hann áfram og bætist við seinni útdrátt næsta mánaðar. Vinningurinn getur því stækkað um 10 milljónir á mánuði en gengur að fullu út í árslok. Að auki eru í Milljónaveltunni hverju sinni dregnir út 5 vinningar að upphæð 1 milljón króna, aðeins úr seldum miðum. Í desember verða að auki dregnir út tíu 500.000 króna vinningar úr seldum miðum.
Til baka,
Prenta greinina