Stefna Gullnámunnar
Happdrættisvélar Gullnámunnar eru einungis staðsettar þar sem börn og unglingar hafa ekki aðgengi. Þess vegna eru engar vélar frá Gullnámunni staðsettar í verslunum, söluturnum eða öðrum svæðum þar sem gera má ráð fyrir að börn og unglingar gangi um. Þeir aðilar sem gert hafa samninga við HHÍ um rekstur slíkra véla eiga það sameiginlegt að reka staði þar sem aldurstakmörk eru að lágmarki 18 ár, en iðulega 20 ár.
Gullnáman notar einungis happdrættisvélar og leiki frá viðurkenndum framleiðendum þar sem tryggt er að tilviljun ráði niðurstöðu leiks.
Til að tryggja öryggi og hagsmuni notenda er einungis notaður búnaður sem staðist hefur úttekt hjá viðurkenndum óháðum úttektaraðilum.
Búnaðurinn sem Gullnáman notar s.s. hugbúnaður, vélar og leikir stenst ávallt úttekt sérfræðinga áður en hann er tekinn í notkun.
Um úttektirnar sér virt bandarískt fyrirtæki, Gaming Laboratories International Inc. Þetta fyrirtæki sérhæfir sig í úttektum á hug- og vélbúnaði til nota í happdrættisrekstri og er óháð framleiðendum og viðurkennt af íslenskum yfirvöldum.
Til baka,
Prenta greinina