Útborgun vinninga

Vinningar í spilavélum

Flestir vinningar eru greiddir út af vélunum sjálfum. Vinningar hærri en 50.000 krónur eru greiddir út af HHÍ.

Þegar vinningur fer yfir kr. 50.000 gefa spilastaðir út sérstaka vinningskvittun sem þarf að framvísa hjá gjaldkera HHÍ, Tjarnargötu 4, 101 Reykjavík, til að fá vinninginn greiddann. Ekki er hægt að innleysa vinningskvittun fyrr en daginn eftir að hún er gefin út. Til þess að fá vinningskvittunina greidda þarf vinningshafi að framvísa persónuskilríkjum.

Vinningshafar sem búa utan höfuðborgarsvæðisins þurfa að snúa sér til umboðsmanna HHÍ sem munu sjá um að hafa milligöngu um útborgun vinningsins inn á bankareikning vinningshafa.

Vinningar í spilavélum Gullnámu eru skattfrjálsir eins og aðrir vinningar HHÍ.



Til baka, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd