Skemmtilegir leikir með uppsöfnunarpotti
Nokkrir leikir eru í boði í Gullnámunni sem allir skila hlutfalli af spilun í Gullpott. Gullpotturinn stækkar þannig smátt og smátt þangað til einhver heppinn aðili vinnur hann. Gullpotturinn getur fallið í hvaða Gullámuleik sem er, enginn einn leikur er líklegri en annar til að skila Gullpottinum. Allar Gullnámuvélar á landinu eru samtengdar þannig að allar vélarnar safna í Gullpottinn og allar geta gefið Gullpottinn.
Allar Gullnámuvélar eru með leiðbeiningamynd sem sýnir allar mögulegar vinningslínur.
Því hærri upphæð sem spilað er fyrir því hærri eru vinningarnir.
Til að eiga möguleika á að vinna Gullpottinn þarf að spila fyrir hámarks upphæð, 300 krónur, og fá ákveðna röð tákna sem tilgreind er á leiðbeiningagleri hverrar Gullnámuvélar.
Gullpotturinn byrjar í 1.000.000 kr. eftir að hann fellur en getur stækkað verulega og numið milljónum.
Gullnámuvélarnar eru með vinningshlutfallið 90% en 92% með Gullpottinum.
Til baka,
Prenta greinina