Spurt og svarað

Spurningar og svör um Gullnámuna

Rekur Gullnáma HHÍ spilastaði?

Nei, Gullnáman rekur eingöngu spilavélar á spilasölum og vínveitingastöðum í eigu annarra.


Hvenær skal skrifa vinningskvittun?

Ef spilavél gefur merki um "Jackpot" og spilar lag á afgreiðslumaður í spilasal að fylla út sérstaka vinningskvittun sem Gullnáman sér stöðunum fyrir. Vinningskvittanir eru ekki teknar gildar nema þær séu á réttum eyðublöðum merktum Gullnámu.


Hvar er hægt að leysa út vinningskvittanir?

Vinningskvittanir er einungis hægt að leysa út hjá gjaldkera HHÍ, Tjarnargötu 4, 101 Reykjavík. Vinningshafar sem búa utan höfuðborgarsvæðisins þurfa að snúa sér til umboðsmanna HHÍ sem munu sjá um að hafa milligöngu um útborgun vinningsins inná bankareikning vinningshafa.


Hverjar eru vinningslíkurnar í spilavélunum?

Gullnámuvélarnar hafa vinningshlutfallið 90% en 92% með Gullpotti. Gullregnsvélarnar hafa 92% vinningshlutfall.


Er aldurstakmark í spilavélar?

Já, það er 18 ára aldurstakmark í spilavélarnar. Að auki eru þeir sem reka veitinga- eða spilastaði þar sem Gullnámuvélar eru staðsettar, yfirleitt með 20 ára aldurstakmark inn á staðina.


Hvar get ég spilað?

Hægt er að spila á hinum ýmsu spilastöðum um land allt. Til að finna spilastað sem hentar þér er best að skoða listann yfir spilastaðina.


Hvað skal gera ef inneign festist í spilavél

Spilavélarnar geta í undandtekningatilvikum stíflast við útborgun. Vinsamlegast hafði þá sambandi við starfsfólk í afgreiðslu spilastaðanna og það sér um að greiða út inneignina.



Til baka, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd