25 miðar með milljón hver!
Milljónamiðinn er stærsti miðinn enda eru á honum fjórir aðskildir leikir.
Hæsti vinningur er ein milljón króna en í hverju upplagi eru 25 slíkir milljónavinningar. Möguleiki á að vinna milljón hefur aldrei verið meiri í skafmiðaleik á Íslandi.
Ef merki HHÍ birtist undir minni skafreitnum á efri hluta miðans hefur viðkomandi unnið kr. 5.000.
Ef sama upphæðin birtist þrisvar á stærri skafreitnum fær viðkomandi þá fjárhæð í vinning.
Ef tvær eins myndir birtast á minni skafreitnum á neðri hluta miðans fær viðkomandi fjárhæðina sem birtist við hliðina á myndunum, í vinning.
Ef öll þrjú táknin eru eins í láréttri röð á stærri skafreitnum fær viðkomandi upphæðina sem er í sömu röð og táknin í vinning.
Milljónamiðinn kostar kr. 300.
Til baka,
Prenta greinina