Spurt og svarað

Hér eru nokkrar spurningar sem við höfum fengið:

Hvað kostar Happaþrenna?

  • Seldar eru fjórar tegundir skafmiða sem kosta 100 kr., 200 kr. og 300 kr. Einnig bjóðum við upp á jólamiða frá miðjum nóvember og fram í janúar sem kostar 150 kr. Sjá nánar um hverja tegund fyrir sig.

Hvar fæ ég greiddan vinninginn?

  • Vinningar sem eru 1000 kr. eða lægri eru greiddir á sölustöðum. Hærri vinninga þarf að sækja í aðalumboð HHÍ eða hjá umboðsmönnum um land allt.

Hvernig veit ég að ég hafi fengið vinning?

  • Á öllum skafmiðum er texti sem útskýrir leikreglur og segir til um hvað þarf að gera til að hljóta vinning og líka til um vinningsupphæðina.

Miðinn kom rifinn út úr sjálfsalanum.

  • Skilið miðanum til söluaðila án þess að skafa af miðanum. Þá fáið þið hann endurgreiddan. Ef búið er að skafa af miðanum fæst hann ekki endurgreiddur. Ef skafreitirnir eru heilir er miðinn fullgildur og því óhætt að skafa miðann.

Hvað þarf að borga í skatt af vinningum?

  • Vinningar HHÍ eru skattfrjálsir. Þetta þýðir að ef þú færð 500.000 í vinning – þá færðu 500.000 í vinning! Happdrætti Háskólans sendir hvorki skattyfirvöldum né öðrum aðilum upplýsingar um vinninga, enda eru þeir eins og fyrr segir, skattfrjálsir.


Til baka, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd