HHÍ

Starfsemi Happdrættis Háskóla Íslands

Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ) er alfarið í eigu Háskóla Íslands og rekið með það að markmiði að afla fjár til byggingaframkvæmda og tækjakaupa fyrir Háskólann.

Allt frá stofnun happdrættisins árið 1933, hefur það fjármagnað nær allar byggingar Háskóla Íslands. Húsnæði og tæki Háskólans eru því ekki keypt fyrir skattfé almennings, heldur að lang stærstum hluta fyrir framlög HHÍ.

HHÍ rekur þrjú happdrættisform: Flokkahappdrætti, skafmiðahappdrætti og skjávélahappdrætti.



Til baka, Prenta greinina

 

Fréttir og tilkynningar

24. janúar 2012 :Milljónaveltan fer af stað

Í dag fór Milljónaveltan af stað. Að þessu sinni gengu 10 milljónirnar ekki út. Þær velta því áfram og bætast við seinni útdrátt febrúarmánaðar sem verður þá 20 milljónir!

Hins vegar gengu fimm stakir milljónavinningar út til heppinna miðaeigenda.Lesa meira
 

10. janúar 2012 :Árið byrjar vel

Nýtt ár tók vel á móti miðaeigendum happdrættisins í dag, þegar dregið var í fyrsta Aðalútdrætti ársins. Í heild féllu til um 50 milljónir króna, sem dreifðust óvenju vel. Að þessu sinni var venju fremur mikið um millistóra vinninga - til dæmis voru sjö vinningar að fjárhæð 500 þúsund króna, 6 vinningar að fjárhæð 200 þúsund króna og 39 vinningar að fjárhæð 100 þúsund króna.Lesa meira
 

Næstu útdrættir

10. feb. 2012

24. feb. 2012

13. mar. 2012

Milljónamælirinn

Útgreiddir vinningar á árinu eru...

57.185.000 kr.


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd