Fréttir og tilkynningar

10. maí 2012 :Vorgleði í happdrættinu

Það er ljóst að margir miðaeigendur happdrættisins fara með sól í hjarta inn í sumarið - til dæmis allir þeir sem fengu hundrað þúsund krónur í Aðalútdrætti maí mánaðar en þeir voru þrjátíuogeinn talsins.
Sömuleiðis geta þeir fimm sem fengu tvö hundruð þúsund krónur farið að láta hugann reika, svo ekki sé minnst á þá sjö sem fengu hálfa milljón.Lesa meira
 

25. apríl 2012 :Milljónavelta gekk ekki út

Milljónaveltan fór fram í dag, 25. apríl kl. 16:30, að viðstöddum fulltrúum innanríkisráðuneytisins. Tíu milljóna króna vinningur gekk því miður ekki út að þessu sinni og verður því vinningurinn 20 milljónir í maí. Hins vegar fengu fimm miðaeigendur milljón hver, nú sem endranær í seinni útdrætti Happdrættisins.Lesa meira
 

11. apríl 2012 :Ekkert apríl gabb hjá Happdrættinu

Aðalútdráttur apríl mánaðar var óvenju happadrjúgur, að minnsta kosti fyrir miðaeigendur Happdrættisins. Heilar 87 milljónir gengu út til ríflega þrjú þúsund lukkulegra vinningshafa vítt og breitt um landið. Heppnastur allra var þó karlmaður á miðjum aldri á Suðurlandi sem fékk 5 milljónir á trompmiðann sinn og fimmfaldaði því vinninginn, fékk 25 milljónir króna!  Kona og karl í Reykjavík fengu ennfremur 5 milljónir hvor og þrír vinningshafar fengu milljón.Lesa meira
 

27. mars 2012 :30 milljónir til sjötugrar í Reykjavík - aftur!

Í dag, 27. mars, var dregið í Milljónaveltu Happdrættis Háskólans. Potturinn hafði safnast upp í 30 milljónir í mars eða um 10 milljónir fyrir hvern mánuð ársins sem liðinn er, þar sem hann hafði ekki gengið út. Í þetta skipti gekk hann þó út. Vinningurinn kom á tromp miða í eigu konu um sjötugt á höfuðborgarsvæðinu, en hún hafði átt miðann um árabil.Lesa meira
 


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd