Fréttir og tilkynningar

10. maí 2012 :

Vorgleði í happdrættinu

Það er ljóst að margir miðaeigendur happdrættisins fara með sól í hjarta inn í sumarið - til dæmis allir þeir sem fengu hundrað þúsund krónur í Aðalútdrætti maí mánaðar en þeir voru þrjátíuogeinn talsins.
Sömuleiðis geta þeir fimm sem fengu tvö hundruð þúsund krónur farið að láta hugann reika, svo ekki sé minnst á þá sjö sem fengu hálfa milljón. Heppnastir að þessu sinni voru þó tveir vinningshafar sem fengu milljón hvor. Alls skiptu 2.795 manns með sér ríflega 50 milljónum króna. Óskum við öllum vinningshöfum til hamingju og vonum að þeir njóti brakandi vorblíðunnar.

Til baka, Prenta greinina

 



Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd