12. júní 2012 :67 milljónir í júní
Aðalútdráttur júní mánaðar var sérlega glæsilegur en rúmar 67 milljónir verða í kjölfar hans greiddar út til 2.902 vinningshafa fyrir vikulok. Stærstu vinningarnir fóru til tveggja miðaeigenda, þar sem hvor fékk fimm milljónir króna í sinn hlut. Annar þeirra fékk reyndar að auki hundrað þúsund krónur á hinn miðann sinn, en hann á tvo einfalda miða. Þá fékk einn gríðarheppinn 500 þúsund krónur, en þar sem hann átti alla miða í númerinu, fjóra einfalda og tromp-miða, fékk hann samtals 4,5 milljónir. Stundum getur borgað sig að spila djarft. Við óskum öllum innilega til hamingju!
Til baka,
Prenta greinina