26. júní 2012 :Dreymdi fyrir milljón
30 milljóna pottur Milljónaveltunnar gekk ekki út þegar dregið var í dag kl. 16:30. Hann verður því 40 milljónir þegar dregið verður aftur í Milljónaveltunni 24. júlí. Hins vegar gerðist annað dularfullt í dag og starfsfólk happdrættisins man ekki eftir öðru eins:
Tryggur miðaeigandi sem búsettur er erlendis hringdi í afgreiðslu happdrættisins klukkutíma fyrir útdrátt og sagðist hafa dreymt fyrir stórum vinningi á tiltekið númer og bókstaf. Hann keypti miðann og kvaddi. Sumir virðast sannarlega vera heppnari en aðrir eða eiga í sérstöku sambandi við hulduöfl. Í öllu falli fékk maðurinn milljón á nýkeyptan miðann sinn, og var reyndar fremur lítið hissa þegar haft var samband við hann. Hann þakkaði þó kærlega fyrir sig. Óskum við vinningshöfum dagins til hamingju.
Til baka,
Prenta greinina