10. ágúst 2012 :Einu sinni á ágústkvöldi
Aðalútdráttur ágúst mánaðar fór fram lögum samkvæmt í dag, 10. ágúst kl. 18:00. Rúmar 54 milljónir króna féllu á selda miða til ríflega 2800 miðaeigenda. Meira var um smærri vinninga í þetta skiptið, en þó voru 12 vinningar að verðmæti 500 þúsund króna, 10 vinningar að verðmæti 200 þúsund króna og 46 vinningar að verðmæti 100 þúsund króna. Aðrir vinningar voru smærri.
Eftir hálfan mánuð verður svo dregið í Milljónaveltunni um fimm staka milljónavinninga og stóra pottinn, heilar 50 milljónir króna!
Til baka,
Prenta greinina