04. janúar 2010 :75 milljónir til tveggja barna móður
Stærsti vinningur í sögu Happdrættis Háskóla Íslands, 75 milljónir, var dreginn út 29. desember síðastliðinn. Vinningurinn kom á Trompmiða í eigu tveggja barna móður á fimmtugsaldri, en númerið hefur hún átt í nokkur ár og fengið nokkrum sinnum smærri vinninga.
Vinningshafinn tók tíðindum af óvæntu ríkidæmi af mikilli tortryggni og vantrú, en sannfærðist þegar hún fletti upp síðustu vinningaskrá á vefsíðu Happdrættisins. Hún segir vinninginn svo sannarlega koma í góðar þarfir þar sem fjölskyldan hafi ráðist í byggingaframkvæmdir fyrir nokkrum árum. Fjárhagsstaðan sé slæm og lán í frystingu eins og hjá mörgum þessa dagana.
Hinni stálheppnu móður býðst að sjálfssögðu fjármálaráðgjöf, en að eigin vali, enda getur Happdrættið ekki mælt sérstaklega með einni fjármálastofnun umfram aðra.
Til baka,
Prenta greinina