Markmið

Markmið HHÍ

Frá því Happdrættið var stofnað árið 1933 hefur það fjármagnað nær allar byggingar Háskólans. Það þýðir að húsnæði og tæki Háskólans er ekki keypt fyrir skattfé, heldur að lang stærstum hluta fyrir fé frá Happdrættinu.

Til þess að sinna þessu markmiði var í upphafi og vel fram eftir öldinni rekið flokkahappdrætti. Síðar, eða árið 1987, hófst sala á skafmiðum, svo kölluðum Happaþrennum. Nokkrum árum síðar, eða árið 1993, hófst svo rekstur skjávélahappdrættis sem fékk nafnið Gullnáma.

Allur hagnaður af þessum rekstri fer til uppbyggingar Háskóla Íslands, bæði til bygginga og eins til kaupa á búnaði fyrir nemendur og kennara.

Til baka, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd