Tekjurnar dreifast víða
Tekjur Happdrættis Háskóla Íslands dreifast víða. Þrátt fyrir að megin markmið happdrættisins sé efling Háskóla Íslands með byggingu húsnæðis yfir skólann og að útvega góðan tækjakost, þarf einnig að nota hluta teknanna til annarra mála.
Stærstur hluti teknanna fer aftur til viðskiptavina happdrættisins í formi vinninga. Vinningshlutfall einstakra happdrættisforma er mjög mismunandi, allt frá rúmlega 50% upp í rúm 90%.
Leyfisgjald rennur til ríkisins. Það getur numið allt að 150.000.000 á ári.
Tekjurnar fara svo að sjálfsögðu einnig til almenns rekstrar HHÍ.
Þannig skiptast tekjurnar í vinninga, rekstur, leyfisgjald og framlög til Háskóla Íslands.
Til baka,
Prenta greinina