Gjald til ríkisins fyrir rekstur peningahappdrættis
Með lögum nr. 75/2006 sem samþykkt voru á Alþingi þann 3. júní 2006 var ákveðið að Happdrætti Háskóla Íslands skyldi greiða s.k. leyfisgjald til ríkissjóðs. Slíkt gjald hafði verið við lýði allt frá stofnun happdrættisins árið 1934.
Leyfisgjaldið nýja er 20% af nettóársarði happdrættisins, en þó ekki hærri fjárhæð en kr. 150.000.000.
Samsvarandi gjald er ekki lagt á önnur happdrætti í landinu.
Til baka,
Prenta greinina