Háskóli Íslands

Skóli til framtíðar

Allur hagnaður HHÍ rennur til Háskóla Íslands. Samkvæmt lögum er hagnaðinum varið til uppbyggingar húsnæðis fyrir Háskólann og til þess að búa skólann sem bestum tækjabúnaði fyrir nemendur og kennara.

Háskóli Íslands er elsti, stærsti og fjölbreyttasti háskólinn á Íslandi, stofnaður 1911. Þar er boðið upp á fjölþætt grunnnám fyrir stúdenta að loknu stúdentsprófi. Einnig er boðið upp á framhaldsnám til meistara- og doktorsprófs. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu, en við Háskólann eru starfræktar um 40 rannsóknastofnanir.

Háskóli Íslands er lifandi stofnun þar sem lögð er stund á flestar vísinda- og fræðigreinar í sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf á Íslandi. Við Háskólann er hópur vel menntaðra og þjálfaðra kennara og vísindamanna. Þar hefur einnig skapast löng rannsóknahefð með miklu samstarfi við erlenda háskóla. Stúdentum sem stunda nám við Háskóla Íslands gefst kostur á að sækja hluta af námi sínu til viðurkenndra erlendra háskóla.

Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér Háskólann frekar er bent á að skoða vefinn þeirra.



Til baka, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd