Vinningar

Ýmislegt um vinninga

Allir vinningar hjá Happdrætti Háskólans eru skattfrjálsir, hvort sem um lítinn eða stóran vinning er að ræða, vinning á skafmiða, í flokkahappdrætti eða í skjávélahappdrætti.

Vinningshlutfallið er mjög mismunandi, allt frá rúmlega 50% í sumum skafmiðaleikjunum upp í ríflega 90% í skjávélahappdrættinu. Vinningshlutfallið í flokkahappdrættinu er 70%. Þetta þýðir að af miðaverðinu, sem er kr. 1.000, renna strax kr. 700 út aftur til vinningshafa í formi vinninga.

Vinningar og útborgun þeirra er trúnaðarmál. Starfsfólk HHÍ og umboðsmenn þess eru bundnir trúnaði um vinninga sem og aðrar upplýsingar sem þeir verða áskynja í starfi sínu. Þannig er engum nema vinningshafa tilkynnt um vinninga í flokkahappdrætti.

Samkvæmt lögum fyrnast vinningar ef þeirra er ekki vitjað innan eins árs frá því þeir eru dregnir út. Eftir þann tíma ber happdrættinu ekki að greiða vinninginn. HHÍ er hins vegar hreykið af því að borga ávallt út vinninga þegar þeirra er vitjað, jafnvel þó eitthvað sé liðið frá því viðkomandi vinningur hefur fyrnst.



Til baka, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd