Annað tækifæri
Annað tækifæri – leikreglur
Gildir frá 23. nóvember til 31. desember 2026.
1. Um leikinn
Annað tækifæri er leikur á vegum Happdrættis Háskóla Íslands (HHÍ), (kt. 600169-3009) í Happið appinu. Í leiknum geta eigendur Happaþrennu sem ekki ber vinning fengið annað tækifæri til að vinna glaðning með því að skafa rafrænan skafmiða í appinu.
Þátttaka í leiknum er ókeypis og krefst ekki annarra kaupa en á Happaþrennunni sem notandinn hefur þegar fest kaup á.
2. Hverjir geta tekið þátt
- Þátttakendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.
- Þátttakendur þurfa að vera skráðir inn í Happið appið með rafrænum skilríkjum.
- Þátttakendur þurfa að samþykkja þessar leikreglur áður en þeir taka þátt.
3. Hvernig á að taka þátt
- Skannaðu Happaþrennu í Happið appinu.
- Ef enginn vinningur er á miðanum býðst þér Annað tækifæri. Veldu „Já, taka þátt“.
- Skafðu rafræna skafmiðann í appinu og sjáðu strax hvort þú hefur unnið glaðning.
Aðeins Happaþrennur sem ekki bera vinning gilda í leiknum. Hver Happaþrenna gildir einu sinni.
4. Hámark á dag
Hver þátttakandi getur í mesta lagi tekið þátt í leiknum 20 sinnum á dag með því að skanna inn 20 Happaþrennumiða sem ekki báru vinning. Fjöldi skannaðra Happaþrennumiða núllstillist á miðnætti.
5. Glaðningar
Alls eru um 500 glaðningar í boði á leiktímanum:
- Ís í brauðformi frá Huppu
- Bíómiði í Sambíóin
Glaðningum er dreift jafnt yfir hvern dag leiktímans. Ef glaðningar ganga ekki út á tilteknum degi færast þeir yfir á næstu daga. Líkur á glaðning ræðast því af fjölda þátttakenda og þeim vinningum sem eftir eru hverju sinni.
Ekki er hægt að skipta glaðningi í peninga eða aðra vinninga.
6. Afhending vinninga
Vinningshafi sér strax í appinu að hann hefur unnið. Vinningurinn er sendur með tölvupósti frá [email protected] á netfangið sem skráð er í Happið appinu. Þátttakendur bera ábyrgð á því að rétt netfang sé skráð.
Um innlausn vinninga gilda skilmálar Huppu eða Sambíóanna, eftir því sem við á. Skilmálarnir koma fram á gjafamiðanum sem sendur er með tölvupósti.
7. Persónuupplýsingar
HHÍ er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með í leiknum. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að halda utan um þátttöku, úthluta vinningum og afhenda þá. Leikurinn er rekinn í samstarfi við Playable, sem vinnur upplýsingarnar fyrir hönd HHÍ.
Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga má finna í persónuverndarstefnu HHÍ: https://www.hhi.is/um-hh%C3%AD/personuverndarstefna-hhi/#e080968e-7502-468b-bc4e-96cd1df6ba38-0
8. Annað
- HHÍ áskilur sér rétt til að ógilda þátttöku ef grunur er um misnotkun eða brot á leikreglum.
- HHÍ ber ekki ábyrgð á tæknilegum truflunum sem kunna að hafa áhrif á þátttöku.
- HHÍ áskilur sér rétt til að breyta leikreglum eða hætta leiknum fyrir lok leiktímans. Breytingar eru birtar á hhi.is.
9. Fyrirspurnir
Hægt er að senda fyrirspurnir leikinn á netfangið [email protected] eða hringja í síma 5638300.