Vann ég?
Öll geta notað app HHÍ sem kallast Happið til að greiða sér sjálft út vinninga.
Happið er ofureinfalt í notkun og mælum við með notkun þess þar sem það tryggir öryggi og skilvirkni.
Það þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn í Happið og svo þarf að skrá bankareikning til að geta fengið vinninginn greiddan út.
Skanna þarf QR kóða sem er undir skafreitnum til að staðfesta vinning í Happinu. Hann er svo lagður inn á veskið í appinu.
Hægt er að skanna marga miða í einu, safna vinningum saman í veskinu og greiða þá svo alla inn á bankareikning í einni upphæð.
Þegar búið er að leggja vinning inn á veskið er miðinn ógildur og þá má rífa hann og henda.
Ekki er hægt að fá vinninga greidda út á sölustöðum nema hjá eftirfarandi sölustöðum og umboðum:
- Aðalumboði HHÍ, Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík opið frá 9-15 alla virka daga
- Videómarkaðnum Hamraborg 20a, 200 Kópavogur opið fram á kvöld og um helgar
- Happahúsinu í Kringlunni, opið 10-18 mán-lau
- Fjölumboðinu, Strandgötu á Akureyri, opið 10-17 mán-fös
Ef frekari aðstoðar er þörf er hægt að hafa samband við Aðalumboð HHÍ í síma 563-8300. Við erum við símann frá kl. 8-16 alla virka daga.
Sækja Happið